Bílrúður

Verkstæði Bílrúðunnar er vel búið nútímatækjum sem tryggja nákvæm og örugg bílrúðuskipti. Við leggjum ríka áherslu á að nota eingöngu rúður frá upprunalegum framleiðendum, enda skiptir gæði og öryggi höfuðmáli í allri okkar þjónustu. Öll ísetningaefni sem við notum eru viðurkennd af helstu bílaframleiðendum og uppfylla ströngustu gæðakröfur sem gerðar eru í greininni.

Frá upphafi hefur Bílrúðan lagt áherslu á að rúðuísetningar séu í höndum fagmenntaðra bílasmiða. Starfsfólk okkar býr yfir áratuga reynslu af bílrúðuskiptum og viðgerðum, sem tryggir faglega og áreiðanlega þjónustu í hverju verki. Til að undirstrika gæðin í vinnu okkar bjóðum við þriggja ára ábyrgð á bílrúðuskiptum í nýrri bílum og tveggja ára ábyrgð í eldri bílum.

Réttingar og málun

Bílaréttingar eru okkar sérgrein og við búum yfir meira en 50 ára reynslu og þekkingu í réttingum á bílum. Við vinnum ávallt eftir stöðlum framleiðenda og notum eingöngu viðurkennd efni og tækjabúnað sem tryggir áreiðanlegar og öruggar viðgerðir. Starfsfólkið okkar er allt fagmenntað á sínu sviði; hjá okkur starfa meðal annars meistari í bifreiðasmíði, bifreiðasmiðir, bílamálarar og bifvélavirkar með sveinspróf. Við leggjum mikla áherslu á stöðuga endurmenntun svo þekking og færni sé alltaf í takt við nýjustu kröfur og tækni.
Við höfum mikla reynslu af bæði stórum og smáum tjónum og leggjum metnað í að skila vönduðu verki með ábyrgð og fagmennsku. Markmið okkar er að veita hraða, góða og persónulega þjónustu þar sem viðskiptavinurinn er ávallt í fyrsta sæti. Til að minnka rask útvegum við bílaleigubíl á meðan viðgerð stendur, svo daglegt líf haldist sem eðlilegast.
Bílasprautun er nákvæmt og vandasamt verk, og við leggjum okkur fram um að finna hinn fullkomna lit fyrir hvert ökutæki. Við vinnum af fagmennsku og tryggjum að lakkið fái sem besta endingu. Gæði eru í forgrunni og við fylgjum stöðlum framleiðenda í allri málun. Okkur er umhugað um bílinn þinn og hann er vandlega pakkaður inn fyrir sprautun, þar sem hreinlæti og vönduð vinnubrögð eru leiðarljós.
Að lokinni viðgerð færðu bílinn afhentan hreinan og glansandi, handþrifinn með mjúkum svömpum. Við takmörkum okkur ekki við bíla — Innréttingar, mótorhjól, fjórhjól, bátar og önnur tæki eru einnig velkomin til okkar. Við notum umhverfisvæn og endingargóð efni frá Glasurit í allri bílamálun, sem tryggir bæði gæði og langlífi